18m vs 23mj augnblik

Sirka 18 mánaða augnablik vs. rétt tæpir 23 milljarðar ára

Ég legg ekki í að reikna út hversu marga daga hljómsveitin Purrkur Pillnikk starfaði í sinni upprunalegu mynd, enda var sá líftími í einhverjum skilningi óleysanlegt stærðfræðidæmi. Sem gekk algerlega upp, án þess þó nokkurn tíma að leysast – nema þá að leysast upp í ágúst 1982. Einar Örn segir mér t.d. að á fyrstu æfingunni, þar sem við tveir, og Frikki og Ásgeir, vorum samankomnir á sviðinu í Norður-kjallara Menntaskólans við Hamrahlíð, hafi hlutverkaskipanin „ekki enn“ verið ákveðin; það dæmi hafi hins vegar verið leyst þegar Ásgeir rétti „hátalara“ í áttina að Einari og sagði: „Syngdu.“ Í endurliti hefði slík tilhögun ekki átt að ganga upp, því Einar hafði ekki sungið áður í míkrófón, að minnsta kosti ekki eigin texta. Þetta var þó ekki eins einfalt og þegar samstarfsmaður Bing Crosbys – væntanlega upptökustjóri í einhverju stúdíóinu í Ameríku – sagði við Bing: „Now Bing – sing.“ Auk þess sem hvatning eða hugmynd Ásgeirs var ekki í rímuðu máli (þótt auðvitað hefði hann getað sagt: „Jæja, Einar – þú veinar.“ Eða: „Þú meinar.“ Því það átti eftir að verða einhver merking á bakvið þetta allt – einhver meining).

Við Frikki og Ásgeir vissum á hvaða hljóðfæri við myndum spila á þessari fyrstu æfingu okkar, 8. mars 1981, en það var óljósara hvað Einar hugðist gera, þótt hann ætti sirka 50% í þeirri hugmynd að stofna hljómsveit. Samt hlýtur eitthvað að hafa legið í loftinu um hvert hlutverk hans yrði, fyrst við vorum með tengdan míkrófón á sviðinu. Einar verður sjálfur að svara því. Hefði Ásgeir t.d. otað míkrófóninum að mér, með þeim tilmælum að ég ætti syngja, hefði ég afþakkað. Og þótt Frikki sé alveg örugglega með meiri söngrödd en ég, efast ég um að hann hefði hlýtt, hefði Ásgeir beðið hann um þetta sama. En auðvitað þurfti Einar að gera eitthvað – og ég man ekki til þess að önnur hljóðfæri en trommur, bassi og gítar hafi verið til staðar þarna í kjallaranum. Nema þá hugsanlega klarínett – ég verð líka að spyrja Einar að því.

Því minnisleysi kallar á spurningar. Og spurningar á svör. Og nú, þegar ég hef spurt Einar út í þetta kemur á daginn að hann hafði hugsað sér að búa til einhvern hávaða ofan á gítarinn, bassann og trommurnar; hann hafði fengið lánaðan fuzz pedal hjá Daníel Pollock, Utangarðsmanni (þeim sem átti eftir að stjórna upptökum á plötunni okkar, Tilf). Og eins og Einar benti okkur Frikka á, þegar við ræddum þetta nýlega, þá rímaði sú hugsun hans – að hávæðast með fótstiginu – við þá ákvörðun okkar snemma á þessu ári, 2023 (þegar við vorum á leiðinni í stúdíó til að taka upp Orð fyrir dauða, að fá til liðs við okkur tónlistarmanninn Örlyg Arnalds, einmitt í þeim tilgangi að framleiða hávaða og setja einhvern extra lit í þessar nýju útgáfur okkar af síðustu lögunum sem við sömdum. Það var hugmynd Einars að tala við Ölla; hann þekkti til þess sem hann hafði gert með hljómsveitunum Side Project og Korter í flog – og eitthvað sagði honum að Ölli ætti heima með okkur í stúdíóinu. 

Sem reyndist vera alveg rétt. Samstarfið við Ölla og Albert Finnbogason, upptökustjórann, hefði ekki getað orðið betra. Alltaf nýjar hugmyndir á sveimi, bæði frá þeim og okkur. Og ekkert nema gaman. Ég sá líka ekki betur en að Ölli væri með einhvers konar pedal í mixerherberginu, en lagði ekki í að spyrja hvað það tæki stæði fyrir.

*

Á fyrstu æfingunni okkar í Norður-kjallara, 8. mars, sömdum við stóran hluta þeirra tíu laga sem enduðu á sjötommunni Tilf, aðeins mánuði síðar. Og spiluðum reyndar á tónleikum daginn eftir, 9. mars. En eins og ég held að sé orðið skýrt man ég sjálfur ekki mikið frá fyrsta æfingadeginum. Ég gleymi því þó ekki að þegar stutt var liðið á æfinguna birtist Þorgerður Ingólfsdóttir, hinn farsæli stjórnandi MH-kórsins, í dyrunum að Norður-kjallara, og var ekki glöð á svip. Ég man ekki hvernig hún orðaði það, en hún bað okkur – ekki mjög vinsamlega – að hætta þessum hávaða; hún væri með það sem hún kallaði Paul Zukofsky-námskeið í Hátíðasal skólans (sem er á efri hæðinni), og þau Paul og nemendurnir hefðu engan vinnufrið fyrir látunum í okkur. Paul Zukofsky var bandarískur fiðluleikari sem hélt námskeið fyrir ungt tónlistarfólk á Íslandi á árunum 1977 til 84 – það starf leiddi síðan til stofnunar Sinfóníuhljómsveitar æskunnar. Það má því segja að tveir andstæðir pólar í músík hafi tekist á þennan dag í MH: lært tónlistarfólk í klassísku deildinni vs. fjórir „ómenntaðir“ gaurar sem áttu eftir að monta sig af því opinberlega að kunna ekki mikið á hljóðfærin sín. 

Hvernig þetta endaði á milli okkar og Þorgerðar er mér gleymt – hvort við lækkuðum í okkur eða létum kvartanir hennar sem vind um eyru þjóta – en eftir á að hyggja hefði kannski verið farsælast að við byðum hinu lærða tónlistarfólki til samstarfs á staðnum – á sama hátt og við fengum til liðs við okkur Ölla rúmum fjörtíu árum síðar. Zukofsky og nemendur hefðu getað sargað á fiðlur sínar, ofan í okkar einnar mínútu löngu lög. Það hefði hugsanlega lengt lögin um einhverjar sekúndur, jafnvel mínútur, og án efa skilað öðruvísi pródúkti en Tilf á endanum varð.

*

Nokkur laganna á næstu plötu Purrks Pillnikk, ekki enn, voru samin og æfð í Sheffield á Englandi. Vaterland, Hvað get ég gert, Án nafns, og einhver fleiri. Í gegnum Ásgeir höfðum við komist í samband við franskan Englending að nafni Marcus Featherby; hann rak lítið plötufyrirtæki í Sheffield, Limited Edition Records (sem meðal annars gaf út fyrstu plötu Fræbbblanna); og einhvern veginn æxlaðist það svo að hann reddaði okkur æfingahúsnæði í borginni, sem tilheyrði hljómsveit sem hét Artery. Jafn lítið og ég man eftir því húsnæði situr þeim mun fastar í minninu íbúð Marcusar, þar sem við hittumst oft; ég man sérstaklega eftir eldhúsinu og baðherberginu, enda stendur skrifað í dagbókinni minni frá þessum tíma: „Klósett og eldhús – hvort var hvað?“ Ég tók því miður engar ljósmyndir í íbúðinni, en það er í raun nóg að kíkja á upphafssenur bíómyndarinnar Withnail & I eftir Bruce Robinson til að vita hvernig þetta var – það var eitthvað lifandi í eldhúsvaskinum. Og gott ef ekki eitthvað dautt inni á baði.

Marcus Featherby, sem notaðist við nafnið Sebastian þegar hann átti erindi til London, og tók síðar upp síðar upp nafnið James, reykti þrjá til fjóra pakka af Benson & Hedges á dag. Kannski óþarfi að vera að rifja upp eitthvað svona í texta sem fylgir hljómplötuútgáfu, en úr því ég man svo lítið frá þessum tíma, þá vil ég nýta þær minningar sem ég þó á. Marcus var líka nýtinn á hlutina; hann tvínýtti reykinn úr sígarettunum sínum, með því að láta hann líða út um munninn og soga hann þaðan upp í nefið. Eftir á finnst mér eins og þetta hafi verið merki um einhverja sérstaka fágun, hugsanlega eitthvað franskt, en um leið eitthvað frumstætt, þá líklega enskt – kannski pönk.

Til að taka upp lögin á plötuna ekki enn fórum við síðan til London, í sama stúdíó og Crass, og fleiri hljómsveitir tengdar Crass, notuðu á þessum árum, Southern Studios. Og nýttum það stúdíó aftur, sirka ári seinna, með sama upptökustjóranum, þegar við tókum upp fjögurra laga plötuna No time to think, að loknu tónleikaferðalagi með The Fall um England. Sú plata varð okkar síðasta stúdíóverk – við áttum bara eftir að gefa út tónleika- og bílskúrsupptökusafnið Maskínuna. En þá vorum við hættir, að minnsta kosti í bili.

*

Það hæsta sem Purrkur Pillnikk náði á vinsældalista á Íslandi var þriðja sætið, með lagið Hvað get ég gert. Á mínum prívat vinsældalista er þetta lag líka mjög ofarlega; og það versnaði ekki við það að Einar bætti einni línu við textann þegar við tókum það aftur upp með Sigtryggi í maí síðastliðnum:

„Hvað hef ég gert?“

What have I done?

Það er óþarfi að benda á tvöfalda merkingu þessarar einföldu spurningar; en af því hægt er að túlka hana sem svo að Einar sé að efast – að hann opni fyrir þann möguleika að hafa gert eitthvað af sér (hann verður sjálfur að svara því) – þá verður mér hugsað til þess að líklega efuðumst við í hljómsveitinni aldrei um gjörðir okkar þá 18 mánuði sem við störfuðum. Enda þurftum við ekki að geta það sem við gerðum – við bara gerðum það. Það er líka skemmtilegt að uppgötva eftir á að titillinn á þessu umrædda lagi inniheldur sagnirnar að geta og gera.

*

Ég talaði hérna í byrjun um „upprunalega“ mynd Purrks Pillnikk. Trommuleikarinn í þeirri „mynd“ var auðvitað Ásgeir – og án hans hefði hljómsveitin haft svolítið ólíkan karakter. En þótt ég sé mikill áhugamaður um trommuleik, þá grunar mig að ég hafi ekki gert mér fulla grein fyrir því, á meðan við unnum saman, hversu sterkan karakter Ásgeir hafði sem trommari. Ég býst við að sá skilningur hafi komið síðar. Og líklega varð þetta enn skýrara fyrir mér þegar við Einar og Friðrik hlustuðum á Purrkur Pillnikk Tribute Band á Lemmy í Austurstræti á síðasta ári, því trommuleikarinn þar, Andri Geir Árnason, hafði greinilega stúderað til botns hinn hugmyndaríka áslátt Ásgeirs. Á meðan ég horfði og hlustaði á þessa frábæru hljómsveit – sem var út af fyrir sig mjög sérkennileg reynsla og góð: að heyra músíkina okkar flutta af öðrum – beið ég alltaf eftir því hvort Andri Geir myndi ná að gera það sem Ásgeir gerði við trommusettið; öllum fínu núönsunum. Og vegna þess hvað Andra tókst það vel, sannfærðist ég endanlega um hversu góður og litríkur trommuleikari Ásgeir var.

En það að ég skuli tala um „upprunalega“ mynd Purrks Pillnikk hlýtur að fela í sér að til sé önnur mynd, ekki upprunaleg. Og í þeirri mynd er Sigtryggur Baldursson. Og hefur í raun verið frá árinu 1985, þegar við spiluðum á tónleikum í Félagsstofnun stúdenta. Ásgeir gat ekki verið með þá, hvort hann var ekki einhvers staðar í útlöndum. Og auðvitað fylgdi með Sigtryggi annar karakter en Ásgeirs, eins og heyra má á upptökunni úr „stofnuninni“ í nágrenni Háskólans og Þjóðminjasafnsins, og enn betur á nýju upptökunum í Sundlauginni í Mosfellsbæ. Þegar við vorum að æfa fyrir þær upptökur, í Síðumúla, og hlusta á lögin í upprunalegri mynd, til að rifja þau upp, dáðist Sigtryggur að mörgu sem Ásgeir hafði látið sér detta í hug við settið – samt ekki til að apa það upp – einmitt alls ekki – enda var hugmynd okkar sú að herma ekki eftir okkur sjálfum, eins og við vorum fyrir nokkrum áratugum. Því þegar við ákváðum að gefa Orðum fyrir dauða nýtt líf, auk fjögurra „afturgangna“ (Gluggagægir, Útilokaður, Í augum úti og Hvað get ég gert), vorum við þvert á móti einbeittir í því að láta þessi lög hljóma eins og þau væru samin og hugsuð árið 2023. 

En eins og lesendur vita eru það ekki bara Orð fyrir dauða og Afturgöngurnar sem við erum að gefa nýtt líf í þessari útgáfu, heldur líka allt hitt sem Purrkur Pillnikk gaf út, plús tónleikaupptökur sem ekki hafa verið aðgengilegar. Og þar sem slík útgáfa verður ekki til af sjálfu sér – og til þess að hún hljómi betur en hún gerði upphaflega – þá fengum við galdramanninn Curver Thoroddsen til að fara yfir allan pakkann. Hans ótrúlega færni, innsæi og þolinmæði er algerlega ómetanleg í þessu ferli. Og eins og lesendur vita líka er yfirskrift þessa verkefnis, og pródúkts, Orð fyrir dauða. Við sem stöndum að þessu höfum þó ekki hugmynd um hvort Purrkur Pillnikk geri eitthvað meira í framtíðinni. Burtséð frá því hvort við getum það eða ekki. Næstu 23 milljarðar ára – sem eru reyndar rétt tæpir 23, séu þau 42 ár sem liðin eru frá útgáfu Tilf dregin frá – þeir 23 milljarðar verða að leiða í ljós hvernig staðan verður á því. Eða eins og Ásmundur Jónsson, okkar eiginlegi guðfaðir, komst að orði þegar við keyrðum um grænar sveitir Englands, á túrnum með The Fall, með nokkra brúna pappakassa af bleikum umslögum utan um Googooplex (sem þá var nýkomin út, og við seldum á tónleikastöðunum) – þegar við vorum að drepast úr hita í bílnum vegna þess að bílstjórinn Ásgeir var með kvef, og bannaði okkur að skrúfa niður rúðurnar – þegar síðan afturhurðin á skutbílnum opnaðist allt í einu á ferð, og kassarnir með umslögunum hentust út á „mótorveginn“ – þar sem þeir opnuðust, og við tók fremur óheppileg plötudreifing í enskri sveit – þá fórnaði Ási höndum, þar sem hann sat í aftursætinu – nei, það gerðist ekki alveg þannig; og nú kemur Einar mér aftur til hjálpar, með því að minna mig á að Ási reyndi að standa upp í bílnum, þegar ljóst var að farmurinn aftur í hafði færst úr stað; hann rak höfuðið í loftið, og það var þá sem hann baðaði út höndum og spurði okkur hina:

„Hvernig er staðan?“

Við vissum það ekki alveg um leið, en höfum verið að taka stöðuna síðan. Sofandi, vakandi, lifandi, dauðir.

Bragi Ólafsson